Stoðveggir • hleðslur • undirvinna

Stoðveggir og hleðslur

Stoðveggir og hleðslur fyrir heimili, húsfélög og verktaka.

Við vinnum mikið með Magnum steina frá BM Vallá og Recon steina frá Steypustöðinni. Við sjáum um undirvinnu, dren, bakfyllingu og festingar þar sem þarf.

Magnum og Recon Uppgröftur og undirvinna Dren og bakfylling Festingar þar sem þarf
Stór hlaðinn stoðveggur frá Lóðaþjónustu Hlyns
Lág hleðsla og frágangur við heimili

Fáðu tilboð

Sendu staðsetningu, myndir og stutta lýsingu á veggnum eða hleðslunni.

Við förum yfir verkefnið og höfum samband.
Hleðsla og tröppur við lóð

Rétt uppbygging skiptir öllu máli

Stoðveggur þarf að vera rétt byggður frá grunni til að haldast stöðugur til lengri tíma. Undirlag, burður og dren skipta þar mestu máli. Annars geta jarðvegur, vatn og frost haft áhrif á vegginn með tímanum.

Við metum hæðir, jarðveg, álag og aðkomu áður en við byrjum og veljum lausn sem hentar staðnum. Í hærri eða meira krefjandi veggjum metum við líka þörf á akkerum, boltun eða öðrum festingum.

Stoðveggir og hleðslur

Allt frá minni veggjum við heimili og bílaplön yfir í stærri stoðveggi á milli lóðamarka.

Undirvinna og uppgröftur

Uppgröftur, burðarlag, púði og undirvinna áður en veggurinn er reistur.

Dren og bakfylling

Rétt dren og bakfylling til að draga úr vatnsþrýstingi og halda veggnum stöðugum.

Festingar og akkeri

Akkeri, boltun í klöpp og aðrar festingar þar sem hæð, álag eða aðstæður kalla á það.

Spurt og svarað

Ef þú ert með myndir af svæðinu er oft auðveldara að sjá hvaða lausn hentar.

Hvaða stoðveggi og hleðslur takið þið að ykkur?

Við tökum að okkur allt frá minni veggjum á heimilislóðum og hleðslum við bílaplön yfir í stærri stoðveggi á milli lóðamarka.

Af hverju skiptir dren og bakfylling svona miklu máli?

Rétt dren og góð bakfylling minnka vatnsþrýsting á vegginn og hjálpa honum að halda sér stöðugum til lengri tíma. Frost, vatn og jarðvegur geta annars haft mikil áhrif á vegginn.

Vinnið þið með Magnum og Recon steina?

Já. Við vinnum mikið með Magnum steina frá BM Vallá og Recon steina frá Steypustöðinni, auk annarra lausna eftir aðstæðum og útliti.

Þarf alltaf akkeri, boltun eða sérstakar festingar?

Nei. Það fer eftir hæð veggsins, jarðvegi, álagi og aðstæðum. Í hærri eða meira krefjandi veggjum metum við hvort þörf sé á akkerum, boltun í klöpp eða öðrum festingum.

Vantar þig stoðvegg eða hleðslu?

Sendu staðsetningu, myndir og sirka lengd og hæð ef þú veist hana. Við förum yfir aðstæður og getum komið að skoða áður en við gerum tilboð.

Frágengin lóð með hleðslum
Hringja Fyrirspurn