Hvaða hellulagnir takið þið að ykkur?
Við tökum að okkur hellulagnir fyrir stíga, innkeyrslur, verönd og önnur svæði við heimili og fyrirtæki.
Fallegar, endingargóðar og vandaðar lausnir fyrir lóðina þína
Við tökum að okkur hellulagnir fyrir stíga, bílaplön, verönd og hleðslukanta fyrir heimili og fyrirtæki. Lögð er áhersla á góðan undirbúning, vandaða vinnu og snyrtilegan frágang svo útkoman endist vel við íslenskar aðstæður. Við setjum einnig upp snjóbræðslukerfi og sjáum um allt ferlið frá upphafi til enda.
Traust framkvæmd og snyrtilegur frágangur
Rétt uppbygging undir hellum skiptir öllu máli. Undirlagið ræður því hvernig yfirborðið heldur sér, sérstaklega við íslenskar aðstæður. Við tryggjum sterkt burðarlag og nákvæma hæðarstillingu svo hellurnar liggi rétt og haldist stöðugar.
Mikil reynsla af hellulögnum og hleðslum
Verkið unnið markvisst frá upphafi til enda
Mætum á réttum tíma og klárum verkið
Skýr samskipti, sanngjarnt verð og snyrtilegur frágangur
Við tökum að okkur hellulagnir fyrir stíga, innkeyrslur, verönd og önnur svæði við heimili og fyrirtæki.
Já, við setjum upp snjóbræðslukerfi í stígum og innkeyrslum og sjáum um allt ferlið frá upphafi til enda.
Já, við sjáum um uppgröft, burðarlag, þjöppun, hæðarstillingar og annan undirbúning áður en hellulögn hefst.
Við vinnum aðallega á höfuðborgarsvæðinu en tökum einnig að okkur stærri verk á Suðurnesjum og í kringum Hveragerði og Selfoss.
Hvort sem þú þarft stíg, innkeyrslu, verönd eða heildarlausn fyrir lóðina, þá erum við tilbúin að fara yfir verkefnið með þér og finna bestu útfærsluna.
Senda fyrirspurn →